Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 23:14
Hafliði Breiðfjörð
Umfjöllun: Stórleikur Dalton tryggði Selfoss sigur á FH
Kvenaboltinn
Michele Dalton var frábær í kvöld. Hér ver hún frá Ashlee Hincks.
Michele Dalton var frábær í kvöld. Hér ver hún frá Ashlee Hincks.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH 1 - 2 Selfoss
1-0 Ashlee Hincks ('27 )
1-1 Guðmunda Brynja Óladóttir ('53 )
1-2 Valorie Nicole O´Brien ('83 )

Selfoss gerði sér góða ferð í Kaplakrikann í kvöld og sótti þrjú stig til FH í 2. umferð Pepsi-deildar kvenna.

Þó úrslitin gefi annað til kynna þá var FH miklu betra liðið á vellinum í kvöld og skapaði sér urmul dauðafæra en Michele Dalton markvörður Selfoss liðsins átti stórleik og lokaði markinu.

FH komst yfir eftir tæplega hálftíma leik. Halla Marinósdóttir sendi boltann þá inn fyrir vörn Selfoss á Sigrúnu Ellu Einarsdóttur sem var ein gegn Dalton sem varði vel frá henni, boltinn barst út á Ashley Hincks sem fylgdi eftir og þrumaði í markið.

Staðan 1-0 í hálfleik og fátt sem benti til annars en að heimastúlkur myndu eiga auðvelt með að klára verkefnið enda búnar að eiga allavega tíu dauðafæri á meðan mesta hættan hinum megin hafi skapast þegar Guðmunda Óladóttir var að sleppa ein í gegn en Nanna markvörður kom út og tók boltann á undan henni eftir stundarfjórðung.

Leikurinn jafnaðist í síðari hálfleiknum og á 53. mínútu jafnaði Selfoss metin. Valorie O'Brien sendi þá góðan bolta inn fyrir markið á Guðmundu Brynu sem skoraði með viðstöðu lausu skoti af stuttu færi.

Bæði lið áttu færi eftir þetta, FH liðið þó fleiri en Dalton var sem fyrr örugg í markinu. Það var svo á 83. mínútu að Valorie skoraði sigurmarkið með skalla í kjölfar hornspyrnu.

Lokastaðan 1-2 fyrir Selfoss sem byrjar mótið frábærlega er með fullt hús stiga, eftir tvo sigurleiki í fyrstu tveimur umferðunum gegn FH og Þrótti. FH liðið náði í stig gegn Þór/KA í fyrstu umferðinni.

FH: Nanna Rut Jónsdóttir, Berglind Arnardóttir (Guðrún Höskuldsdóttir '68), Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, Vitoría Valdís Guðrúnardóttir, Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir, Halla Marinósdóttir, Teresa Rynier, Heiða Dröfn Antonsdóttir (Margrét Sif Magnúsdóttir '76), Sigrún Ella Einarsdóttir, Ashlee Hincks, Hugrún Elvarsdóttir (Guðrún Björg Eggertsdóttir '61).
Ónotaðir varamenn: Hafdís Erla Gunnarsdóttir (m), Elísabet Guðmundsdóttir, Hildur Egilsdóttir, Margrét Sveinsdóttir.

Selfoss: Michele Dalton, Tiana Brockway, Hrafnhildur Hauksdóttir, Guðmunda Brynja Óladóttir, Bergrún Linda Björgvinsdóttir, Karen Inga Bergsdóttir, Anna María Friðgeirsdóttir, Eva Lind Elíasdóttir (Katrín Ýr Friðgeirsdóttir '38), Valorie O'Brien, Erna Guðjónsdóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir (Karitas Tómasdóttir '76).
Ónotaðir varamenn: Inga Lára Sveinsdóttir (m), Bríet Mörk Ómarsdóttir, Þórhildur Svava Svavarsdóttir, Íris Sverrisdóttir, Katrín Rúnarsdóttir.
Slapp
banner
banner
banner