Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 14. maí 2013 21:13
Elvar Geir Magnússon
Úrslit kvöldsins - Grindavík vann Ægi naumlega
Grindavík átti í vandræðum með Ægi.
Grindavík átti í vandræðum með Ægi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Álftanes lagði Elliða.
Álftanes lagði Elliða.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hér má sjá úrslit úr þeim leikjum í 2. umferð Borgunarbikarsins sem lokið er. Grindavík komst í 4-1 gegn Ægi í Þorlákshöfn en lenti í kröppum dansi. Grindvíkingar náðu á endanum að vinna nauman sigur.

Hamar skoraði sigurmarkið í Berserkjahrauni í blálokin. tíu leikmenn Álftaness áttu ekki í vandræðum með Elliða, Gunnar Wiglund heldur áfram að raða inn mörk fyrir Reyni og Þróttur Vogum vann Hómer sannfærandi.

Leikur Sindra og Fjarðabyggðar fór í framlengingu.

Ægir 3 - 4 Grindavík
Mörk Grindavíkur: Stefán Pálsson 2, Juraj Grizelj víti, Daníel Leó Grétarsson.
Mörk Ægis: Haukur Már Ólafsson 2, Gunnar Marteinsson.

Berserkir 1 - 2 Hamar
0-1 Hermann Ágúst Björnsson ('45)
1-1 Ólafur Guðmundsson ('56)
1-2 Atli Hjaltested ('90)

Álftanes 3 - 0 Elliði
1-0 Guðbjörn Alexander Sæmundsson ('8)
2-0 Guðbjörn Alexander Sæmundsson ('25)
3-0 Andri Janusson ('62)
Rautt spjald: Viktor Ari Viktorsson, Álftanes ('10)

Reynir S. 7 - 0 Grundarfjörður
Mörk Reynis: Gunnar Wigelund 3, Guðmundur Gísli Gunnarsson, Pétur Þór Jaidee, Egill Jóhannsson, Deividas Leskys.

Þróttur Vogum 3 - 0 Hómer
1-0 Reynir þór Valsson
2-0 Bragi Bergmann Ríkharðsson
3-0 Arnar Smárason (víti)

Upplýsingar af úrslit.net
Slapp
banner
banner