Hér að neðan má sjá úrvalslið næst síðustu umferðar ítölsku A-deildarinnar. Í liðinu að þessu sinni má sjá ellefu leikmenn úr ellefu mismunandi liðum.
Samir Handanovic [Inter]
Hélt hreinu gegn Genoa en því miður fyrir stuðningsmenn Inter voru sóknarmenn liðsins ekki í sama stuði.
Angelo Ogbonna [Torino]
Stýrði vörninni og var alltaf á varðbergi gegn Chievo.
Giorgio Chiellini [Juventus]
Besti leikmaður Juventus í 1-1 jafntefli gegn Cagliari. Býr yfir flottri tækni, er í mögnuðu formi og flottur karakter.
Fabrizio Grillo [Siena]
Lokaði á Pablo Armero og Rolando en hápunkturinn var mark hans úr aukaspyrnu.
Juan Guillermo Cuadrado [Fiorentina]
Lagði upp sigurmark Luca Toni gegn Palermo með frábærri fyrirgjöf.
Marek Hamsik [Napoli]
Kom inn á síðasta hálftímann þegar Napoli var að tapa. Breytti leiknum og Napoli vann 2-1 sigur.
Alessandro Diamanti [Bologna]
Maður leiksins í sterkum 2-0 útisigri gegn Parma.
Antonio Candreva [Lazio]
2-0 sigur gegn Samprdoria þar sem Candreva fór illa með varnarmenn andstæðingana.
Pablo Barrientos [Catania]
Gerði markverði Pescara lífið leitt.
Victor Ibarbo [Cagliari]
Fór ansi illa með Andrea Barzagli í liði Ítalíumeistara Juventus. Kom sínum mönnum yfir en leikurinn endaði 1-1.
Antonio Di Natale [Udinese]
Skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri gegn Atalanta.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


