Karen Sturludóttir var öflug í 2-0 sigri nýliða HK/Víkings á Þrótti, hinum nýliðum deildarinnar. Karen skoraði fyrra mark HK/Víkinga sem voru þarna að vinna sinn fyrsta sigur í deildinni í sumar. Í samtali við Fótbolta.net eftir leik sagði Karen að ekkert annað en sigur hefði komið til greina.
„Við bara urðum að vinna þetta. Við ætluðum að koma brjálaðar og komum brjálaðar til leiks," sagði Karen.
Aðspurð um upplegg þjálfarans fyrir leikinn svaraði Karen:
„Við ætluðum að pressa hátt á þær, vera á undan í boltann, taka bolta númer tvö. Bara koma brjálaðar."
„Við erum búnar að æfa mjög vel saman og erum með frábæran þjálfara sem er búinn að rífa okkur áfram og fá aðra leikmenn sem eru búnir að standa sig frábærlega vel. Líka litlu stelpurnar sem hafa komið inn. Það eru bara allir að standa sig mjög vel," sagði Karen meðal annars en hægt er að horfa á viðtalið við hana í sjónvarpinu hér að ofan.






















