Úrúgvæski miðvörðurinn Jose Maria Gimenez er búinn að skrifa undir nýjan samning við Atletico Madrid.
Samningurinn gildir til 2023 og er innifalið söluákvæði upp á 120 milljónir evra.
Gimenez hefur verið mikilvægur hlekkur í vörn Atletico undanfarin ár en á nýliðnu tímabili fékk hann minni spilatíma en vanalega.
Orðrómar voru á kreiki um að Gimenez vildi yfirgefa Atletico en svo er ekki. Hann er 23 ára og getur spilað sem miðvörður og hægri bakvörður.
Athugasemdir