fim 14. júní 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Strætóbílstjórinn á leið 11 í rosalegum HM gír
Icelandair
Össur í geggjuðum HM gír.
Össur í geggjuðum HM gír.
Mynd: Strætó
Mynd: Strætó
Einungis tveir dagar eru í að Ísland mæti Argentínu í fyrsta leik sínum á HM frá upphafi. Össur Pétur Valdimarsson, strætóbílstjóri á leið 11, er heldur betur kominn í HM gírinn.

Össur keyrir um í íslenska landsliðsbúningnum og hefur sett íslenska fánann hér og þar í kringum bílstjórasætið.

Össur lætur ekki þar við sitja því hann hefur reynt að fá farþega í vagninum til að taka með sér víkingaklappið eins og sjá má hér að neðan.

Á mánudaginn var Össur einnig með vagninn sérstaklega merktan þegar Ísland mætti Slóveníu í undankeppni HM kvenna.

Össur sló í gegn þann 1. apríl síðastliðinn þegar hann fékk alla farþega úr vagni sínum sem part af aprílgabbi.



Athugasemdir
banner
banner
banner