Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. júní 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjálfari Rússa tók við símtali frá Pútín á blaðamannafundi
Stanislav Cherchesov.
Stanislav Cherchesov.
Mynd: Getty Images
Stanislav Cherchesov var glaður í dag eftir að hafa stýrt Rússlandi til 5-0 sigurs gegn Sádí-Arabíu í opnunarleiknum á HM.

Mikil svartsýni ríkir á meðal rússneskra fótboltaáhugamanna fyrir HM en Rússarnir náðu aðeins að lækka í þessum svartsýnisröddum með stórsigrinum í dag.

Eftir leikinn Cherchesov á blaðamannafund en hann þurfti aðeins að bregða sér frá til að taka símtal.

Þegar hann kom aftur sagði þessum fyrrum markvörður Sovétríkjanna hver hefði verið að hringja. „Þetta var forsetinn. Hann bað mig um að skila þökkum til liðsins og biðja þá um að halda áfram að spila svona."

Vladimír Pútin var á leiknum og hann var greinilega ánægður með sína menn.

Á morgun spilar Egyptaland við Úrúgvæ, en það eru hin liðin í þessum A-riðli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner