14.07.16 - 21:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Már: Eigum að klára svona leik auðveldlega
Auglýsing

Rúnar Már var mættur á KR-völlinn í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta er búnir að vera brjálaðir dagar,\"</i> sagði Rúnar Már Sigurjónsson eftir jafntefli KR og Grasshopper í kvöld.
Rúnar Már var í íslenska landsliðshópnum sem fór EM, en aðeins nokkrum dögum eftir að EM lauk var hann búinn að semja við Grasshopper í Sviss. Hann spilaði með liðinu á KR-vellinum í kvöld og lagði upp mark.

„Frammistaðan var góð í fyrri hálfleik og léleg í seinni. Við eigum að klára svona leik auðveldlega, en við hleyptum þeim inn í leikinn og vel gert hjá KR. Hann verður bara spennandi seinni leikurinn.\"
Hann telur að ekki hafa verið um vanmat að ræða eftir fyrri hálfleikinn.
„Ég veit það ekki. Kannski eitthvað einbeitingarleysi, en ég trúi því ekki að hafi verið eitthvað vanmat.\"
Rúnar kveðst ánægður með sína fyrstu daga hjá Grasshopper.
„Ég hef ekki verið hérna lengi, en mér hefur liðið vel hérna fyrst og smollið vel inn í liðið.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.