Þór Hinriksson þjálfari Vals var ekki sáttur í leikslok þegar hans stúlkur töpuðu 1-0 fyrir Breiðablik í Pepsi deild kvenna í leik sem lauk nú rétt í þessu á Kópavogsvelli. Þór var ekki sáttur með störf dómarans í dag og var að vonum svekktur með það að úrslitin skyldu ráðast á vafasömum aukaspyrnudóm.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 Valur
,,Þetta fór ekki vel fyrir okkur nei, mér fannst dómarinn flauta þessa 50/50 bolta alla Blika megin, það var það sem skar á milli, við vorum í 0-0 stöðunni þar rétt á undan og þar hefðum við getað klárað leikinn," sagði Þór í samtali við Fótbolta.net
Dóra María Lárusdóttir spilaði í miðverði í leiknum, aðspurður hvers vegna hafði Þór þetta að segja:
,,Ég gerði samning út tímabilið, svo að þjálfarastarfið verður kannski laust í haust, þú ert kannski með lausn á þessu?
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir