Þórður Þórðarson, þjálfari kvennaliðs ÍA, var afar ósáttur með vítaspyrnudóminn sem féll í leik liðsins gegn Selfoss í kvöld.
Guðmunda Brynja Óladóttir, framherji Selofss, skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu sem dæmd var snemma í síðari hálfleiks. Þórður var ánægður með sína leikmenn, en afar ósáttur með dóminn.
Guðmunda Brynja Óladóttir, framherji Selofss, skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu sem dæmd var snemma í síðari hálfleiks. Þórður var ánægður með sína leikmenn, en afar ósáttur með dóminn.
,,Skagastelpurnar stóðu sig vel. Þær börðust og hlupu mikið allan leikinn. Þær spiluðu á köflum fínan fótbolta, spiluðu mjög góða varnarleik og það sést bara að lið eins og Selfoss - ég held þær hafi ekki fengið færi í leiknum," sagði Þórður, sem var vikið upp í stúku er hann mótmælti vítaspyrnudómnum.
,,Að þessi vítaspyrna skuli hafa ráðið úrslitum leiksins er bara hlægilegt. Hann dæmir víti þarna á Skagastelpuna - boltanum er vippað í höndina á henni af metersfæri."
,,Fimm mínútum áður er fyrirgjöf frá okkur þar sem leikmaður þeirra ber fyrir sig hendina af 10 metra færi. Þá horfir hann bara upp í stúku og lyftir öxlum."
,,Það er sorglegt að svona dómgæsla skuli hafa áhrif á úrslit leiksins."
Athugasemdir