Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 14. ágúst 2017 21:10
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Gulli Jóns: Dómarinn var ekki viss um hver hrinti
Skagamenn töpuðu suður með sjó í kvöld
Skagamenn töpuðu suður með sjó í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru fyrst og fremst vonbrigði," sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA eftir tap sinna manna gegn Grindvíkingum í kvöld.

Grindvíkingar fengu tvær vítaspyrnur í leiknum, og skoraði Andri Rúnar Bjarnason úr þeim báðum. Gunnlaugur vildi lítið tjá sig um vítaspyrnudómana.

„Ég er í voða erfiðri aðstöðu til þess að sjá hvort þetta sé víti eða ekki víti. Strákarnir tala um að seinna vítið hafi verið soft. Tala um einhverja bakhrindingu. Dómarinn var ekki einu sinni viss um hver það var sem hrinti. Ég man ekki betur en að við áttum að fá víti í fyrri hálfleik. En ég fæ voða lítið fyrir það að vera grenja um það núna."

Lestu um leikinn: Grindavík 3 -  2 ÍA

Skagamenn eru ekki í álitlegri stöðu í deildinni en liðið situr á botni Pepsi-deildar karla, sex stigum frá öruggu sæti.

„Það virðist oft fylgja liðum sem gengur illa og eru kannski í erfiðri period-u, þá er sjálfstraustið slæmt. Við mættum liði í dag sem hefur fengið svolítið af höggum á sig líka. Þess vegna er ég svolítið sár að fylgja ekki betur eftir góðum leik gegn KR, þar sem við vorum ofboðslega þéttir. Auðvitað fylgir það liðum sem eru að ganga illa, að hlutirnir falla ekki alveg með þeim."

Árni Snær Ólafsson var í marki ÍA í kvöld og átti hann ágætis leik. Gunnlaugur segir hann vera orðinn aðalmarkvörður liðsins.

„Árni byrjaði á móti KR, það var hans fyrsti leikur. Árni er aðalmarkvörður liðsins."

Tryggvi Hrafn Haraldsson gekk til liðs við Halmstad í Svíþjóði nú á dögunum og spilar hann því ekki meira með ÍA í sumar. Gunnlaugur segir þó að þetta hafi verið besta ákvörðunin fyrir alla aðila.

„Þetta var besta í stöðunni fyrir alla aðila. Auðvitað er þetta krítískur punktur að missa hann en menn verða einfaldlega að stíga upp."
Athugasemdir
banner
banner
banner