Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. september 2014 19:08
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Stjörnunnar og Keflavíkur - Ólafur Karl á bekkinn
Ólafur Karl Finsen er á bekknum í kvöld.
Ólafur Karl Finsen er á bekknum í kvöld.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Stjarnan og Keflavík mætast í Pepsi-deild karla klukkan 20:00 í kvöld en leikið er á Stjörnuvelli í Garðabæ. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum

Stjarnan gerir eina breytingu á liði sínu frá 2-1 sigrinum á KR í síðustu umferð. Miðvörðurinn Martin Rauschenberg snýr aftur í liðið eftir leikbann og markahrókurinn Ólafur Karl Finsen sest á bekkinn. Niclas Vemmelund hefur tekið út sitt leikbann en er varamaður í kvöld.

Keflavík tapaði síðasta leik gegn Fram 2-4. Frá þeim leik gerir Kristján Guðmundsson þjálfari þeirra tvær breytingar. Bojan Stefán Ljubicic og Aron Grétar Jafetsson fara á bekkinn fyrir Theodór Guðna Halldórsson og Frans Elvarsson.

Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
7. Atli Jóhannsson
8. Pablo Oshan Punyed Dubon
9. Daníel Laxdal
10. Veigar Páll Gunnarsson
11. Arnar Már Björgvinsson
12. Heiðar Ægisson
14. Hörður Árnason
16. Þorri Geir Rúnarsson
24. Rolf Glavind Toft
29. Martin Rauschenberg

Varamenn:
25. Sveinn Sigurður Jóhannesson (m)
4. Niclas Vemmelund
17. Ólafur Karl Finsen
18. Jón Arnar Barðdal
20. Atli Freyr Ottesen Pálsson
22. Þórhallur Kári Knútsson
23. Snorri Páll Blöndal

Keflavík:
1. Jonas Fredrik Sandqvist (m)
3. Magnús Þórir Matthíasson
4. Haraldur Freyr Guðmundsson
6. Einar Orri Einarsson
9. Sigurbergur Elísson
10. Hörður Sveinsson
14. Halldór Kristinn Halldórsson
18. Theodór Guðni Halldórsson
23. Sindri Snær Magnússon
25. Frans Elvarsson
28. Elías Már Ómarsson

Varamenn:
12. Árni Freyr Ásgeirsson (m)
8. Bojan Stefán Ljubicic
13. Unnar Már Unnarsson
17. Aron Grétar Jafetsson
24. Anton Freyr Hauksson
26. Ari Steinn Guðmundsson
29. Fannar Orri Sævarsson
Athugasemdir
banner
banner