Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 14. september 2014 21:42
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Hörmulegt sjálfsmark Milan - Lopez tognaði
Diego Lopez tognaði og fékk á sig sjálfsmark.
Diego Lopez tognaði og fékk á sig sjálfsmark.
Mynd: Getty Images
Ótrúlegur leikur átti sér stað þegar Parma og AC Milan mættust í Seríu A, en lokatölur urðu 5-4 fyrir gestunum frá Mílanó.

Örskömmu fyrir leikslok, eftir að Jeremy Menez hafði skorað magnað mark fyrir AC Milan, fékk Parma smá von þegar hinn ungi Mattia Di Sciglio varð fyrir því óláni að skora herfilegt sjálfsmark.

Di Sciglio málaði sig svolítið út í horn og gaf boltann til baka á markvörðinn Diego Lopez, en þessi fyrrum markvörður Real Madrid tognaði þegar hann ætlaði að hlaupa á eftir boltanum, og missti hann í netið.

Parma tókst þó ekki að jafna, en þetta ótrúlega sjálfsmark má sjá hér að neðan.


Parma 4 - 5 AC Milan Sciglio by yarigavideo
Athugasemdir
banner
banner
banner