“Þetta var náttúrlega gríðarlega erfiður leikur í mjög erfiðum aðstæðum fyrir bæði lið,” sagði Ólafur Páll Snorrason fyrirliði FH eftir 2-0 sigur á Þór nú í dag.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 FH
“Við tókum yfirhöndina í seinni hálfleik og sýndum það með tveimur góðum mörkum. Þetta var bara 50/50 leikur í raun og veru í fyrri hálfleik þannig að við erum mjög heppnir og ánægðir með það að taka 3 stig héðan,” sagði Ólafur einnig.
“Þegar við erum með vindinn í andlitið þá kannski breytist aðeins uppleggið hjá okkur og eins kemur það fram í seinni hálfleiknum hjá okkur, þá pressum við á þá aðeins og skilum tveim góðum mörkum. Þegar þú ert með vindinn í andlitið þá þarftu aðeins að vera varkárari.”
Ólafur átti tvær stoðsendingar en var samt ekkert sérstaklega sáttur með leik sinn.
“Ég er nú reyndar ekki ánægður með leikinn, ég var ekkert sérstaklega góður í leiknum en tvær stoðsendingar, jú jú það er gott.”
Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir