“Mér hefur liðið betur en mér fannst Þórsliðið spila ágætis leik í dag á móti besta liði landsins,” sagði Páll Viðar Gíslason eftir 2-0 tap gegn FH á heimavelli í Pepsi deild karla í dag. Með tapinu var það staðfest að Þórsarar spila í 1. deild að ári.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 FH
“Það sem skildi að var það að þeir voru öflugir í boxinu og kláruðu þetta í föstum leikatriðum með vindinn í bakið í seinni hálfleik. Ég held að það sé alveg á hreinu að við féllum ekki úr deildinni með þessum leik í dag, það er alveg morgunljóst og við hefðum klárlega náð í fleiri stig hefði frammistaðan verið eins og hún var í dag.”
Mikill vindur var á Þórsvelli og olli hann báðum liðum vandræðum.
“Reyna að lifa af og forðast að fá mikið af föstum leikatriðum á sig því þeir eru gríðarlega sterkir og það kom svo á daginn. Á móti myndum við svo reyna að vinna boltann á miðsvæðinu og sækja hratt á þá ef það myndaðist pláss fyrir aftan,” sagði Páll um aðferð sína við vindinum.
Aðspurður um framtíð sína hjá Þór sagði hann:
“Á meðan ég er þjálfari og er með samning þá er ég þjálfari Þórs og stefni á að vera það áfram nema eitthvað annað komi í ljós.”
Nánar er rætt við Pál í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir