Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. október 2014 11:16
Magnús Már Einarsson
Aron gaf Tólfunni fyrirliðabandið
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Eygló Egilsdóttir
Tólfan, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins, lét vel í sér heyra á Laugardalsvelli í gær.

Tólfan stjórnaði stemningunni og þeir tíu þúsund áhorfendur sem voru á vellinum tóku vel undir.

Óhætt er að segja að Tólfan hafi lyft stemningunni á landsleikjum upp á annað plan undanfarin ár.

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslendinga, þakkaði fyrir stuðninginn eftir leik með því að henda fyrirliðabandinu upp í stúkuna inn í Tólfuhópinn eins og sjá má hér til hliðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner