Úrslitasíðan livescore.com var ekki alveg með markaskorara U21 árs liðs Íslands á hreinu í kvöld.
Síðan sagði að Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður Gefle, hefði skorað úr vítaspyrnu í 1-1 jafntefli gegn Dönum.
Síðan sagði að Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður Gefle, hefði skorað úr vítaspyrnu í 1-1 jafntefli gegn Dönum.
Hið rétta er að Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði úr vítaspyrnunni en hinn 26 ára gamli Skúli lék síðast leik með U21 árs landsliðinu árið 2011.
Livescore.com gerði sömu mistök þegar Hólmbert skoraði úr vítaspyrnu fyrir U21 árs landsliðið gegn Frökkum í fyrra.
Athugasemdir