Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   þri 14. október 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Rúnar Alex: Þetta er okkar leikur
Rúnar Alex á æfingu í gær.
Rúnar Alex á æfingu í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður U21 árs landsliðsins, var ánægður með markalausa jafnteflið gegn Dönum síðastliðinn föstudag.

,,Við höfum sýnt áður að við kunnum að verjast og það er gott að geta gert það á svona mikilvægu mómenti," sagði Rúnar Alex við Fótbolta.net í gær.

Íslenska liðið spilaði gríðarlega þéttan varnarleik og það fór í taugarnar á Dönum.

,,Þeir voru ekkert alltof hrifnir af þessu. Þetta er okkar leikur og við erum góðir í því svo ég skil ekki af hverju við ættum að fara út af laginu þar."

Rúnar Alex hefur verið að glíma við nárameiðsli en hann reiknar með að ná leiknum í dag.

,,Mér líður ágætlega og ég geri ráð fyrir því að ég geti spilað," sagði Rúnar Alex.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner