Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. október 2017 11:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Carragher: Klopp mun ekki vinna deildina með Liverpool
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, telur að sitt fyrrum félag muni ekki vinna ensku úrvalsdeildina með Þjóðverjann geðþekka Jurgen Klopp sem knattspyrnustjóra.

Það er orðið mjög langt síðan Liverpool vann deildina síðast, en Carragher telur að félagið þurfi að bíða eitthvað lengur.

„Liverpool mun ekki vinna deildina á þessu tímabili," sagði Carragher á Sky Sports. „Ég er ekki sannfærður um að Jurgen Klopp muni einhvern tímann vinna deildina með Liverpool."

„Ég er ekki viss um hvenær mitt gamla félag vinnur deildina aftur. Ég sé það ekki gerast í náinni framtíð."

„Það er ekki gaman að segja þetta, en svona er staðan því miður."

Núna eftir tæpan hálftíma hefst leikur Liverpool og Manchester United á Anfield. Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin.
Athugasemdir
banner
banner