Dagný Brynjarsdóttir varð í kvöld Bandaríkjameistari með Portland Thorns eftir 1-0 sigur þeirra á North Carolina Courage í hreinum úrslitaleik NWSL deildarinnar.
Dagný byrjaði leikinn á bekknum en kom snemma inná í seinni hálfleik. Mark Portland skoraði Lindsey Horan skömmu áður en að Dagný kom inná.
Dagný byrjaði leikinn á bekknum en kom snemma inná í seinni hálfleik. Mark Portland skoraði Lindsey Horan skömmu áður en að Dagný kom inná.
Lið North Carolina Courage endaði efst í deildinni en Portland Thorns í því öðru. Fjögur efstu liðin spiluðu svo í undanúrslitum um Bandaríkjameistaratitilinn.
Við hjá Fótbolti.net óskum Dagný innilega til hamingju með titilinn.
Athugasemdir