Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 14. október 2017 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
De Gea: Þetta var góð markvarsla
Mynd: Getty Images
David de Gea átti eina rosalega markvörslu þegar Manchester United gerði markalaust jafntefli gegn Liverpool í dag.

Segja má að De Gea hafi þar bjargað stiginu.

Liverpool fékk besta færi leiksins þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. De Gea varði hins vegar meistaralega frá Joel Matip, varnarmanni Liverpool.

De Gea var spurður út í markvörsluna að leik loknum.

„Ég reyndi að bregðast fljótt við," sagði De Gea um markvörsluna. „Þetta var bara það fyrsta sem kom upp í hugann á mér þegar hann skaut. Þetta var góð markvarsla."

„Við reynum að vinna alla leiki, en Liverpool var betri en við í dag. Þetta er stig sem við erum ánægðir með."
Athugasemdir
banner
banner
banner