Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefur staðfest að eiginkona sín og dóttir eru flutt til Englands.
Þrátt fyrir að gera Chelsea að Englandsmeisturum á fyrsta tímabili sínu við stjórnvölinn þá talaði Conte oft um það hversu erfitt lífið væri utan vallar á meðan fjölskylda hans bjó á Ítalíu. Vangaveltur voru um að Conte væri að íhuga að snúa aftur heim til Ítalíu.
Þrátt fyrir að gera Chelsea að Englandsmeisturum á fyrsta tímabili sínu við stjórnvölinn þá talaði Conte oft um það hversu erfitt lífið væri utan vallar á meðan fjölskylda hans bjó á Ítalíu. Vangaveltur voru um að Conte væri að íhuga að snúa aftur heim til Ítalíu.
Conte hefur nú róað þá stuðningsmenn Chelsea sem héldu að hann væri með hugann við Ítalíu. Hann segist vera ánægðari núna með fjölskylduna sér við hlið.
„Ég vil að það sé á hreinu að fjölskylda mín er hjá mér. Dóttir mín er komin í skóla í Cobham, þar sem ég bý. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir mig að hafa fjölskylduna með mér," segir Conte.
Hann segir að dóttir sín sé að upplifa nýja lífsreynslu en viðurkennir að hann telji að eiginkona sín, Elisabetta, sé ekki eins ánægð þar sem hún þurfi nú að vera viðstödd skapsveiflur eiginmannsins.
Chelsea er sem stendur í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum frá toppliðunum. Chelsea mætir Crystal Palace í dag klukkan 14.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 34 | 24 | 5 | 5 | 78 | 26 | +52 | 77 |
2 | Liverpool | 33 | 22 | 8 | 3 | 75 | 32 | +43 | 74 |
3 | Man City | 32 | 22 | 7 | 3 | 76 | 32 | +44 | 73 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Newcastle | 32 | 15 | 5 | 12 | 69 | 52 | +17 | 50 |
7 | Man Utd | 32 | 15 | 5 | 12 | 47 | 48 | -1 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 32 | 13 | 8 | 11 | 61 | 53 | +8 | 47 |
10 | Brighton | 32 | 11 | 11 | 10 | 52 | 50 | +2 | 44 |
11 | Wolves | 33 | 12 | 7 | 14 | 46 | 53 | -7 | 43 |
12 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
13 | Bournemouth | 33 | 11 | 9 | 13 | 48 | 60 | -12 | 42 |
14 | Crystal Palace | 33 | 9 | 9 | 15 | 42 | 56 | -14 | 36 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 33 | 10 | 8 | 15 | 34 | 48 | -14 | 30 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 33 | 3 | 7 | 23 | 31 | 88 | -57 | 16 |
Athugasemdir