Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 14. október 2017 11:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fréttamannafundur hjá FH - Óli Kristjáns tilkynntur?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 17:30 í dag. Á fundinum verður tilkynnt um nýjan þjálfara liðsins.

FH ákvað að segja samningi Heimis Guðjónssonar upp í síðustu viku en liðið hafnaði í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar.

„Við höfum verið í viðræðum við góðan þjálfara. Ég trúi ekki að helgin líði án þess að við ráðum þjálfara," sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður FH, við Fótbolta.net í gær.

Líklegt þykir að Ólafur Kristjánsson verði tilkynntur sem þjálfari FH á fundinum. Hann var síðast þjálfari Randers í Danmörku, en hann síðast stýrði hann Breiðabliki hér heima.

Fótbolti.net verður á fréttamannafundinum og færir ykkur fréttir um leið og þær gerast.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner