Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. október 2017 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gæti verið erfitt að finna klippur úr stórleiknum á Anfield
De Gea átti tilþrif leiksins.
De Gea átti tilþrif leiksins.
Mynd: Getty Images
Samhljómur er um að leikur Liverpool og Manchester United í dag hafi verið mikil vonbrigði fyrir spennta fótboltaáhugamenn; eftir tveggja vikna landsleikjahlé biðu allir spenntir.

Fá færi litu dagsins ljós í markalausu jafntefli.

Liverpool stjórnaði ferðinni og gestirnir frá Manchester-borg voru þéttir til baka og gáfu lítið af færum á sig.

Liverpool fékk besta færi leiksins þegar rúmar 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum. David de Gea, markvörður Manchester United varði hins vegar meistaralega frá Joel Matip, varnarmanni Liverpool.

Gary Lineker og félagar hans fara yfir leiki dagsins í kvöld í Match of the Day, en ekki er víst að það finnist margar klippur sem hægt er að sýna. Leikurinn var það slakur.

„Skoðið allt það helsta úr leik Liverpool og Man Utd í MOTD í kvöld, þ.e.a.s. ef hægt er að sýna eitthvað," segir Lineker á Twitter.



Athugasemdir
banner
banner