„Ég er ánægður með sigurinn. Við urðum að einbeita okkur að því að fara vel af stað eftir landsleikjahléið," sagði einn kampakátur Pep Guardiola eftir 7-2 sigur Manchester City á Stoke í dag.
City hefur verið að spila ótrúlega vel í undanförnum leikjum og það virðist fátt geta stöðvað lærisveina Guardiola.
City hefur verið að spila ótrúlega vel í undanförnum leikjum og það virðist fátt geta stöðvað lærisveina Guardiola.
Guardiola segir að leikurinn í dag hafi verið sá besti síðan hann tók við liðinu fyrir síðasta leiktímabil.
„Við töpuðum ekki auðveldum boltum, við spiluðum hratt og einfalt. Þess vegna er ég mjög ánægður. Þetta var okkar besta frammistaða síðan ég tók við hjá félaginu."
Man City er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, með tveimur stigum meira en nágrannarnir í Manchester United.
Athugasemdir