Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. október 2017 16:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hodgson: Fæ mér glas af rauðvíni í kvöld
Mynd: Getty Images
„Það var gaman að þessu," sagði Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, eftir 2-1 sigur á Englandsmeisturum Chelsea í dag.

Eins og margoft hefur komið fram var þetta fyrsti sigur Palace í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

„Við vorum að spila við Englandsmeistarana en við áttum sigurinn skilið," sagði Hodgson eftir leikinn.

„Við sköpuðum færi, skoruðum mörk og varnarleikur okkar var góður frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Leikmennirnir eiga mikið hrós skilið fyrir þessa frammistöðu í dag."

Hodgson ætlar að fá sér vínglas í kvöld.

„Ég drekk ekki mikið þessa daganna, rauðvín er ekki það besta ef þú vilt ekki innheimta margar kaloríur, en ég fæ mér glas í kvöld. Ég er mjög stoltur af þessari frammistöðu."
Athugasemdir
banner
banner