Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 14. október 2017 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Memphis: Ég held ég muni spila fyrir Real Madrid
Mempis er með háleit markmið.
Mempis er með háleit markmið.
Mynd: Getty Images
Memphis Depay náði ekki að sýna sínar bestu hliðar með Manchester United. Hann var keyptur til félagsins frá PSV og miklar vonir voru bundnar við hann. Hann náði hins vegar aldrei að standast væntingarnar og var að lokum seldur til Lyon.

Hjá Lyon hefur gengið aðeins betur hjá honum, hann er kominn með þrjú mörk og þrjár stoðsendingar hingað til á þessu tímabili.

Nú er hann farinn að stefna að því að spila fyrir Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid.

„Ég held ég muni spila fyrir Real Madrid einn daginn," sagði Memphis í viðtali við stuðningsmannablað PSV.

„Hvenær mun að gerast? Aðeins guð veit það. Hann hjálpar mér og hann mun koma mér þangað."

Annars segist hann mjög ánægður hjá Lyon.

„Ég kann mjög vel við mig hérna. Hér er fjölskyldustemning, svona eins og hjá PSV."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner