Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. október 2017 07:00
Elvar Geir Magnússon
Nabil Fekir tryggði Lyon dramatískan sigur gegn Mónakó
Nabil Fekir skoraði sigurmarkið.
Nabil Fekir skoraði sigurmarkið.
Mynd: Getty Images
Frábært sigurmark úr aukaspyrnu í uppbótartíma færði Lyon 3-2 sigur gegn meisturum Mónakó í stórskemmtilegum leik í frönsku deildinni í gær.

Nabil Fekir skoraði tvö mörk í leiknum, þar af sigurmarkið.

Mariano Diaz komst einnig á blað hjá Lyon sem átti þrívegis skot í tréverkið í leiknum. Rony Lopes og Adama Traore skoruðu fyrir Mónakó.

Lyon komst upp í þriðja sæti með sigrinum, þremur stigum á eftir Mónakó. Paris St-Germain er ósigrað á toppi deildarinnar og mætir Dijon í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner