Petr Cech, markvörður Arsenal, kom engum vörnum við vítaspyrnu Troy Deeney í 2-1 tapi gegn Watford í dag. Það ætti ekki að koma mörgum á óvart þar sem að Cech hefur ekki ennþá varið vítaspyrnu síðan að hann gekk í raðir Arsenal.
Hinn 35 ára gamli Cech gekk í raðir Arsenal frá erkifjendunum í Chelsea sumarið 2015. Síðan þá hefur hann þurft að verjast tólf vítaspyrnum sem hafa allar endað í netinu.
Eins og áður sagði vann Watford leikinn 2-1 en sigurmarkið kom í blálokinn.
Athugasemdir