Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. október 2017 19:04
Kristófer Jónsson
Rangt nafn á skilti Sky Sports
Mynd: Getty Images
Ansi skondið atvik átti sér stað í viðtali við Wilfried Zaha eftir 2-1 sigur Crystal Palace á Chelsea fyrr í dag.

Wilfired Zaha skoraði sigurmark leiksins í lok fyrri hálfleiks og var boðaður í viðtal við Sky Sport eftir leikinn. Tæknimaður Sky Sport hefur hins vegar verið eitthvað utan við sig á þeim tímapunkti og lét nafið Louis Zaha á skiltið í viðtalinu.

Gera má ráð fyrir að þarna hafi hann ruglast á Wilfried Zaha og Louis Saha en sá síðarnefndi er fyrrverandi framherji Machester United.

Það var Yannick Bolasie, fyrrverandi samherji Zaha, sem að benti á þessi mistök á Twitter aðgangi sínum.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner