Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. október 2017 13:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rifist um það hvort Lukaku átti að fá rautt
Mynd: Getty Images
Rifist var um það á samfélagsmiðlum eftir leik Liverpool og Manchester United í dag hvort Romelu Lukaku, sóknarmaður United, hefði átt að líta rauða spjaldið í leiknum.

Lukaku steig á Dejan Lovren, varnarmann Liverpool, en deilur eru um það hvort það hafi verið viljaverk eða ekki.

Smelltu hér til að sjá það þegar Lukaku steig á Lovren

Einhverjir kölluðu síðan eftir því að sjá rautt á Belgann fyrir tæklingu sem hann átti á Joe Gomez, varnarmann Liverpool.

Smelltu hér til að sjá tæklingu Lukaku á Joe Gomez

Lukaku kláraði allar 90 mínúturnar án þess að fá gult spjald. Hér að neðan má sjá umræðuna sem skapaðist á Twitter.

















Athugasemdir
banner