„Þetta er hrikalega súrt, en við höfðum verið nokkurn veginn að bíða eftir þessu. Við gerðum þetta erfitt fyrir okkur sjálfum," sagði miðvörðurinn Jón Guðni Fjóluson eftir 1-1 jafntefli Íslands gegn Katar í vináttulandsleik sem fram fór í dag.
Lestu um leikinn: Katar 1 - 1 Ísland
Jón Guðni spilaði allan leikinn og var frekar sáttur með sína frammistöðu, sérstaklega í fyrri hálfleiknum.
„Þetta eru aðstæður sem maður ekki vanur, það er heitt og þungt loft og maður var orðinn þungur í lokin."
„Við lögðum upp fyrir leikinn að setja á þá og spila hátt í fyrri hálfleik og í seinni að skipta í fimm manna vörn og sitja neðar. Það er gott fyrir okkur að prófa mismunandi kerfi."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir