Ítalski landsliðsþjálfarinn Giampiero Ventura laumaði sér út um bakdyr á hóteli liðsins í Mílanó til að forðast það að hitta fjölmiðlamenn og reiða aðdáendur.
Ventura er óvinsælasti maður Ítalíu eftir að ítalska landsliðinu mistókst að komast á HM eftir tap gegn Svíþjóð í umspilinu,
Ventura er óvinsælasti maður Ítalíu eftir að ítalska landsliðinu mistókst að komast á HM eftir tap gegn Svíþjóð í umspilinu,
Ítalska knattspyrnusambandið fundar á morgun. Ventura verður ekki viðstaddur fundinn en þó er fastlega búist við því að hann verði rekinn.
Sjá einnig:
Frekar í bíó en að horfa á Svía á HM
De Rossi neitaði að hita upp
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Ventura hafi rifist við leikmenn Ítalíu eftir tapið í fyrri leiknum gegn Svíum í Stokkhólmi. Í því rifrildi er sagt að hann hafi hótað því að hætta.
Ventura neitaði þó að segja starfi sínu lausu þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leikinn í gær.
Athugasemdir