Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. desember 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Bailly gæti neyðst til að fara í aðgerð
Mynd: Getty Images
Eric Bailly, varnarmaður Manchester United, gæti neyðst til að fara í aðgerð vegna meiðsla á ökkla sem hafa haldið honum frá keppni undanfarnar vikur.

Bailly hefur misst af síðustu átta leikjum United en hann meiddist í verkefni með landsliði Fílabeinsstrandarinnar í síðasta mánuði.

„Ég held að þetta sé alvarlegt en ég veit ekki hversu lengi hann verður frá," sagði Jose Mourinho, stjóri United, eftir 1-0 sigurinn á Bournemouth í gær.

„Við erum að reyna að meðhöndla meiðslin en ef það gengur ekki endar þetta líklega á aðgerð og aðeins lengri fjarveru."

Chris Smalling og Phil Jones voru í hjarta varnarinnar hjá United í leiknum í gærkvöldi en Mourinho hefur einnig úr Victor Lindelöf og Marcos Rojo að velja í miðja vörnina.
Athugasemdir
banner
banner