Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 14. desember 2017 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Di Maria ekki sáttur með hlutverk sitt
Di Maria fagnar marki.
Di Maria fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria er ekki sérlega sáttur með stöðu sína hjá Paris Saint-Germain á þessu tímabili.

Eftir komu Neymar og Kylian Mbappe hefur Di Maria þurft að sætta sig við færri mínútur inn á vellinum.

Hinn 29 ára gamli Di Maria fékk þó að spila í gærkvöldi þegar PSG vann 4-2 sigur á Strasbourg í deildabikarnum í Frakklandi. Di Maria skoraði og átti stóran þátt í öðru marki.

Di Maria hefur verið orðaður burt frá PSG en eftir leikinn spurðu fréttamenn hann að því hvort hann væri ánægður í París.

„Í París, já. Á þessu tímabili hef ég samt ekki verið ánægður. Ég væri til í að spila meira. Ég ætla að nýta þær mínútur sem ég fæ til hins ýtrasta og sanna að ég eigi skilið að byrja," sagði Di Maria.
Athugasemdir
banner
banner
banner