Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 14. desember 2017 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dyche: Elska að vinna 1-0
Mynd: Getty Images
Sean Dyche, knattspyrnustjóra Burnley, finnst skemmtilegast að vinna fótboltaleiki 1-0.

Burnley hefur unnið níu leiki á tímabilinu, en sex af þeim hafa endað með markatölunni 1-0.

Burnley er í Meistaradeildarbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni og hefur komið öllum á óvart á tímabilinu.

„Ég elska 1-0 sigra," sagði Dyche eftir 1-0 sigur á Stoke á þriðjudagskvöld. „Stuðningsmenn hafa ekki gaman af 1-0 sigrum, en treystið mér, allir stjórar elska þá."

„Brian Clough elskaði 1-0 sigra, og þar var á ferðinni mikill snillingur," sagði Dyche enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner