Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. desember 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Eric Cantona talar um íslenska landsliðið og Sigmund Davíð
Mynd: Getty Images
Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, tjáir sig reglulega í áhugaverðum myndböndum hjá Eurosport.

Cantona talar um HM dráttinn í nýju myndbandi sínu en þar talar hann meðal annars um Ísland og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrrum forsætisráðherra.

„England er í riðli með Panama. Þú færð ekki tækifæri til að spila gegn bankanum þínum á hverjum degi," sagði Cantona.

„Forsætisráðherra Íslands sagði af sér eftir Panama skjölin og skandalinn í kringum þau."

„Ísland á EM. Panama á HM. Þetta er allt tengt. Það er samsæri í gangi gegn Englandi."

Hér að neðan má sjá myndbandið.


Athugasemdir
banner
banner
banner