Jefferson Lerma, leikmaður Levante, sakar Iago Aspas, framherja Celta Vigo, um kynþáttafordóma í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni í gær.
Levante hefur lagt inn formlega kvörtun að beiðni Lerma en Aspas þvertekur fyrir að hafa sagt nokkuð sem gæti flokkast undir kynþáttafordóma.
Leikmönnunum lenti saman og í viðtali í leikslok ásakaði Lerma Aspas um kynþáttafordóma sem ættu ekki að líðast.
Aspas neitar þessu hins vegar.
„Það sem er sagt á vellinum á ekki að fara lengra og þess vegna get ég ekki sagt hvað fór okkar á milli. Ég get samt sagt að ég kallaði hann ekki þessum orðum sem hann segir að ég hafi gert," segir Aspas.
Athugasemdir