Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 15. janúar 2018 21:16
Ívan Guðjón Baldursson
City hættir við að kaupa Alexis - Chelsea í myndinni
Mynd: Getty Images
Allir helstu fjölmiðlar Englands keppast við að greina frá því að Manchester City hefur dregið tilboð sitt í Alexis Sanchez til baka.

Man City ætlar að leyfa Manchester United og Chelsea, sem er komið inn í myndina, að berjast um framherjann frá Síle.

Alexis er 29 ára gamall og eru Rauðu djöflarnir að bjóða 35 milljónir punda til að kaupa hann í janúar. Samningur hans við Arsenal rennur út næsta sumar.

Talið er að Alexis muni fá yfir 300 þúsund pund í vikulaun hjá Man Utd.
Athugasemdir
banner
banner
banner