mán 15. janúar 2018 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Debuchy á förum frá Arsenal
Debuchy hefur ekki fest sig í sessi hjá Arsenal
Debuchy hefur ekki fest sig í sessi hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Mathieu Debuchy, varnarmaður Arsenal, er að öllum líkindum á leið frá félaginu eftir fremur misheppnaða dvöl.

Þessi franski hægri bakvörður hefur aðeins leikið 13 deildarleiki fyrir Arsenal síðan hann var keyptur til félagsins frá Newcastle fyrir 12 milljónir punda sumarið 2014. Þrálát meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá kappanum.

Franska úrvalsdeildarliðið Saint-Etienne er líklegast til að semja við Debuchy sem er 32 ára og hefur einnig leikið með Bordeaux og Lille á ferli sínum, auk þess að eiga 27 landsleiki fyrir Frakkland.

Francis Coquelin yfirgaf Arsenal á dögunum og gekk í raðir Valencia og þá eru allar líkur á því að Alexis Sanchez yfirgefi Lundúnarliðið á næstu klukkutímum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner