Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 15. janúar 2018 17:15
Elvar Geir Magnússon
Dembele aftur á meiðslalistann
Dembele meiddur.
Dembele meiddur.
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele, framherji Barcelona, er tæpur fyrir viðureign Barcelona gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir önnur meiðslavandræði.

Þessi tvítugi Frakki meiddist aftan í læri í 4-2 sigri Börsunga gegn Real Sociedad í gær en það var aðeins fjórði leikur hans síðan hann kom úr fjögurra mánaða meiðslum, líka vegna meiðsla í læri.

Dembele var keyptur frá Borussia Dortmund síðasta sumar fyrir 96,8 milljónir punda .

Hann verður frá í þrjár til fjórar vikur og ekki víst hvort hann verði með í fyrri leiknum gegn Chelsea sem er á Stamford Bridge 20. febrúar.

Börsungar eru með níu stiga forskot á toppi La Liga og ekkert virðist geta komið í veg fyrir að þeir verði Spánarmeistarar.
Athugasemdir
banner
banner
banner