Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 15. janúar 2018 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Magdalena á Selfossi næstu þrjú árin (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Magdalena Anna Reimus er búin að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við Selfoss. Samningurinn gildir út tímabilið 2020.

Magdalena var besti leikmaður Selfyssinga sem komust aftur upp í Pepsi-deildina í fyrra og var kjörin leikmaður ársins í 1. deild.

„Það eru miklar ánægjufréttir að við fáum að vinna með Magdalenu áfram næstu þrjú árin," sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeild Selfoss.

„Hún er ógnandi og skemmtilegur leikmaður með Selfosshjartað á réttum stað. Hún er búin að reynast félaginu vel og heldur því örugglega áfram. Magdalena stóð sig mjög vel síðasta sumar og hefur alla burði til þess að bæta sig enn frekar sem leikmaður."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner