Sænski fjölmiðillinn Sundsvalls Tidning greinir frá því að Rúnar Már Sigurjónsson, miðjumaður Grasshoppers, hafi hafnað tilboðum frá Svíþjóð til að vera áfram í Sviss.
Malmö, sem vann sænsku deildina með 7 stiga mun í fyrra, er meðal félaga sem hafa sýnt Rúnari áhuga í janúarglugganum.
Malmö, sem vann sænsku deildina með 7 stiga mun í fyrra, er meðal félaga sem hafa sýnt Rúnari áhuga í janúarglugganum.
Rúnar hefur fengið góðan spilatíma frá komu sinni til Grasshoppers en er nú á leið burt frá félaginu.
Sundsvalls Tidning greinir frá því að Rúnar sé á leið til St. Gallen á láni.
Bæði lið eru um miðja efstu deild í Sviss. St. Gallen er í evrópudeildarsæti sem stendur og er Grasshoppers þremur stigum neðar.
Athugasemdir