Viðar Örn Kjartansson skoraði eftir fjórtán sekúndur er Maccabi Tel Aviv hafði betur gegn Maccabi Haifa í ísraelska boltanum í dag.
Viðar bætti öðru marki leiksins við snemma í síðari hálfleik, áður en heimamenn minnkuðu muninn og opnuðu þannig leikinn.
Viðar bætti öðru marki leiksins við snemma í síðari hálfleik, áður en heimamenn minnkuðu muninn og opnuðu þannig leikinn.
Cristian Battocchio innsiglaði sigur Tel Aviv á 85. mínútu. Viðar og félagar eru á toppi deildarinnar ásamt Hapoel Beer Sheva.
Hér fyrir neðan er hægt að fyrstu sekúndur leiksins, þar sem Viðar sýnir frábæra takta áður en hann skorar glæsilegt mark.
Viðar er búinn að gera 10 mörk á tímabilinu og er næstmarkahæstur í deildinni. Diaa Saba, sóknarmaður Netanya, er markahæstur með 14 mörk.
Athugasemdir