Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. janúar 2018 06:00
Fótbolti.net
Þróttur Vogum leitar að yngri flokka þjálfara
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Þróttur Vogum leitar að yngriflokka þjálfara sem þarf að geta hafið störf á næstu dögum eða vikum.

Viðkomandi þarf að þjálfa þrjá til fimm tíma á viku. Leysa af aðra þjálfara í keppni og mótum.

Viðkomandi þjálfari kemur að starfsemi eftirfarandi flokka:

6. flokk kvenna.
6. flokk karla.
5. flokk karla.
4. flokk karla.

Einnig mun viðkomandi koma að eflingu annara flokka þegar nær dregur sumri.

Hægt er að fá frekari upplýsingar hjá Marteini framkvæmdastjóra UMFÞ í síma 892-6789 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Það tekur ekki nema 15 mínútur að keyra frá Hafnarfirði í Voga og tilvalið fyrir unga þjálfara að stíga sín fyrstu skref.

Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára eða eldri með brennandi áhuga á knattspyrnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner