Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 15. febrúar 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Bilic gladdi ungan aðdáanda á skemmtilegan hátt
Alf og Slaven Bilic.
Alf og Slaven Bilic.
Mynd: Twitter
Slaven Bilic, stjóri West Ham, gladdi ungan aðdáanda liðsins mikið í gær.

Alf, ungur aðdáandi West Ham, fór með Matt föður sínum fyrir utan æfingasvæði West Ham þar sem þeir freistuðu þess að fá eiginhandaráritanir og myndir með leikmönnum.

Þegar Bilic kom keyrandi út af æfingasvæðinu stoppaði hann og ræddi við feðgana.

Alf var þá ennþá að bíða eftir Andy Carroll en framherjinn er í miklu uppáhaldi hjá honum.

Bilic tjáði Alf að Carroll væri á aukaæfingu og langt væri í að hann myndi keyra heim af æfingasvæðinu.

Bilic ákvað þá að fara með Alf aftur til baka inn á æfingasvæðið til að leyfa stráknum að hitta Carroll. Alf var hæstánægður eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner