Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. febrúar 2017 07:30
Þorsteinn Haukur Harðarson
Cavani búinn að skora í sjö leikjum í röð
Cavani er í banastuði um þessar mundir.
Cavani er í banastuði um þessar mundir.
Mynd: Getty Images
Edison Cavani skoraði eitt af mörkum PSG í 4-0 sigri gegn Barcelona í gær. Þar með hélt Cavani uppteknum hætti en hann hefur raðað inn mörkum undanfarið.

Cavani er nú búinn að skora í sjö leikjum í röð í öllum keppnum og óhætt að segja að hann sé sjóðheitur um þessar mundir. Í þessum sjö leikjum er hann alls búinn að skora tíu mörk.

Alls er Cavani búinn að skora 33 mörk í öllum keppnum það sem af er tímabilinu.

Cavani gat ekki bara fagnað góðum úrslitum í gær því dagurinn var einnig sérstakur fyrir þær sakir að hann varð 30 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner