Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 15. febrúar 2017 06:30
Þorsteinn Haukur Harðarson
Galatasaray rak þjálfarann (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Jan Olde Riekernik hefur verið rekinn úr starfi sem þjálfari tyrkneska liðsins Galatasaray en félagið staðfesti þetta í gærkvöldi.

Eftir að hafa gert liðið að bikarmeisturum á seinasta tímabili hefur lítið gengið á þessu tímabili og liðið er nú fimm stigum á eftir Besiktas sem vermir toppsætið.

Igor Tudor er talinn líklegur til að taka við liðinu en hann er í dag þjálfari Karabukspor þar sem Ólafur Ingi Skúlason spilar.

Kolbeinn Sigþórsson var á láni hjá Galatasaray fyrir áramót en náði ekki að spila leik með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner