Steven Gerrard, fyrrum fyrirliði Liverpool, spilar á Anfield í næsta mánuði þegar hann tekur þátt í góðgerðarleik gegn Real Madrid.
Gerrard lagði skóna á hilluna í nóvember í fyrra en hann ætlar að taka einn leik á Anfield þann 25. mars.
Gerrard lagði skóna á hilluna í nóvember í fyrra en hann ætlar að taka einn leik á Anfield þann 25. mars.
Gerrard spilar í goðsagna liði Liverpool með leikmönnum eins og Ian Rush, Robbie Fowler, Jamie Carragher, Luis Garcia og John Arne Riise.
Fowler verður fyrirliði Liverpool í leiknum og Rush verður spilandi stjóri.
Lið Real Madrid verður einnig skipað goðsögnum úr sögu félagsins en allur ágóði af leiknum rennur í góðgerðarmál.
Athugasemdir