Lauren, fyrrum leikmaður Arsenal, hefur trú á að liði nái að vinna Bayern Munchen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Arsenal á harma að hefna gegn Bayern eftir að hafa dottið út gegn þýska liðinu þrívegis í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar síðan árið 2005.
„Þú getur ekki alltaf tapað gegn sama liðinu," sagði Lauren.
„Ég held að þeir spili þennan leik á öðruvísi hátt. Þeir þekkja Bayern Munchen og núna eru leikmenn Arsenal reyndari í Meistaradeildinni."

„Þeir verða að sýna meiri samstöðu og takast á við þetta eins og þetta sé úrslitaleikur."
„Þegar þú spilar gegn Chelsea, Bayern, United og þessum stórum liðum þá þarftu að spila eins og þetta sé úrslitaleikur."
Athugasemdir